Jarlinn


sunnudagur, ágúst 31, 2003
Grolsh í boltanum

Það var mikið grolch í boltanum á laugardaginn þegar við tókum á móti hressum Núnamönnum á Leiknisvellinum. Skemmst er að segja frá því að við lögðum þá að velli 3-1 en þetta var fyrri leikurinn í undanúrslitum. Fæst orð bera minnsta ábyrgð og svoleiðis verður það hjá mér um þennan leik! Þeir eru bjánar og vonandi rústum við þeim í síðari leiknum!! Þeir eru reyndar með ágætis lið en spila grófan og leiðinlegan bolta. Seinni leikurinn á þriðjudag á Tungubökkum í Mosfellsbæ kl 17:30, allir að mæta!!


miðvikudagur, ágúst 27, 2003
Sætara verður það ekki!!!!

Þessi fyrirsögn er hverju orði sannara því í gærkvöldi lögðum við Fjarðarbyggð í 8-liða úrslitunum í 3.deildinni! Fyrri leikurinn fór fram á laugardaginn á Eskifirði og fór ég ekki með sökum leikbanns. Einar „Buxi“ og Sævar voru einnig í banni. Eftir markalausan fyrri hálfleik settu þeir 3 mörk á okkur í síðari hálfleik og staðan frekar svört fyrir seinni leikinn sem fram fór í gær á Ghetto Ground að viðstöddu margmenni. Nokkrar breytingar voru gerðar á liðinu, ég kom inn í hafsentinn á ný, Sævar fór í vinstri bakvörðinn, Jón Steinar kom á miðjuna og Buxi kom í senterinn og leikkerfið var 4-3-3. Við vissum það að ef við myndum fá á okkur mark yrðum við að skora fimm svo menn yrðu að vera á tánum. Á 1. mín skoraði Haukur með skoti utan teigs og rétt fyrir hlé skoraði Sævar aftur og við því í ágætis stöðu í hálfleik og nú þurfti aðeins eitt mark til að knýja fram framlengingu. Strax í upphafi síðari hálfleiks skoraði Jón Steinar og 10 mín. fyrir leikslok skoraði Robbi sem hafði komið inná sem varamaður. Eftir þetta tókst okkur að halda fengnum hlut og fengu Fjarðarbyggðarmenn engin teljandi færi og 4-0 sigur staðreynd og sæti í undanúrslitum þar sem við mætum Núma. Fyrri leikurinn verður á laugardaginn á Leiknisvelli kl 14:00 og vil ég hvetja fólk til að mæta. Annars er það að frétta að skólinn er byrjaður og gengur hann sinn vanagang. Þess má geta að ég fékk gult spjald og var það hárréttur dómur! Þetta var ekki dómaraskandall eins og það er yfirleitt þegar ég fæ spjöld:)


föstudagur, ágúst 08, 2003
Sigur í hörkuleik

Í kvöld lögðum við Reynismenn að velli í úrslitaleik B-riðils á Leiknisvelli, 2-1. Eftir markalausan fyrri hálfleik og mikinn barning náðum við að setja 2 mörk um miðjan seinni hálfleik og vorum komnir í þægilega stöðu auk þess að vera manni fleiri síðustu 25.mín. En Reynismenn minnkuðu muninn með marki úr aukarspyrnu korteri fyrir leikslok en lengra komust þeir ekki. Þetta var minn fyrsti leikur á þessari leiktíð með Leikni og ég get ekki neitað því að mér leið vel að spila í kvöld. Fann mig fínt í leiknum í haffsentinum ásamt Snorra. Reynismenn fengu ekki marga sénsa í þessum leik þökk sé góðri varnarvinnu liðsins. Næsti leikur er á mánudag gegn ÍH á Tungubökkum. Annars er það að frétta að ég mun halda norður á morgun með Gissa en við ætlum í golf á Dalvík og sjá Leiftur/Dalvík-Stjörnuna kl 17 á morgun en aðalatriðið hjá mér er að sækja afganginn af dótinu mínu sem er á Ólafsfirði. Bið að heilsa í bili.


fimmtudagur, ágúst 07, 2003
Kominn á klakann

Nú er maður kominn á klakann eftir eftirminnilega 5 daga í góðra vina hópi. Fórum á fimmtudagskvöld, ég, Valur, Ása og Doddi. Ég er að hugsa um að skrifa eina ferðasögu en hún kemur ekki fyrr en eftir helgi ef af henni verður. Annars skemmtum við okkur konunglega og verð ég að þakka Freysa og Erlu fyrir sinn þátt í að gera þessa ferð ógleymanlega. Vorum í góðu yfirlæti hjá þeim og það var gott að sækja þau heim. Langt síðan maður sá þau skötuhjú síðast og kominn tími til!! Og ég verð að vera sammála Erlu í þeim efnum af hverju engin stúlkukind hefur nælt sér í mig:) Annars var gaman að lesa hvað hún skrifaði um okkur strákana eftir helgina á síðunni sinni. En ferðin í alla staði frábær og það er ekki hægt að lýsa henni betur en í einu orði: SNILLD


fimmtudagur, júlí 31, 2003
Hæ hó og jibbý jei, það er komin 31.júlí!

Nú er komið að því sem allir hafa verið að bíða eftir!! Á morgun held ég til Kaupmannahafnar og ætla að vera þar ásamt 6 vinum í 5 daga yfir verslunarmannahelgina. Gissur er farinn, Sævar og Andi í fyrramálið og ég, Valur og Doddi förum kl 18:10 í dag, fimmtudag. Verðum í góðu yfirlæti hjá Freysa og þetta verður án efa stórkostleg helgi! Annars er það að frétta að ég er kominn suður endanlega í sumar og mun leika með Leikni það sem eftir er sumars. Ástæðan er sú að ég fer í skóla um miðjan ágúst og eftir að hafa verið í banni í 2 leiki og setið á bekknum næstu 2 þá ákvað ég að láta slag standa og leika með mínu liði það sem eftir lifir sumar. Reyndar hefur þetta sumar verið hið ánægjulegasta fyrir norðan. Búin að kynnast fullt af fólki, vinnan fín og strákarnir í liðinu fínir. En ég mun heimsækja Ólafsfjörð 2 svar í ágúst og oftar í náinni framtíð og á ég ánægjulegar minningar frá sumrinu. Mun leika minn fyrsta leik á þessari leiktíð með Leikni þann 8.ágúst gegn Reyni er það er einmitt úrslitaleikur riðilsins, ekki amalegt að byrja á því! Ég bið að heilsa í bili og læt heyra í mér heyra eftir helgina.


föstudagur, júlí 11, 2003
Mikið fjör um helgina

Nú um helgina verður eflaust svakastuð þegar Jarlinn fær nú í fyrsta sinn heimsókn hér á Ólafsfjörðinn! Hingað koma Birgir Sverrisson, Ólafur Hvanndal og spússa hans María, Ásta Björk Agnarsdóttir og Þorbjörg Jónsdóttir. Þau munu renna í hlað þegar nálgast miðnætti og þá verð ég búin að taka til heima og redda dýnum:) Annars er það að frétta úr boltanum að ég hef átt í vandræðum með ökklann í þessari viku og fór til sjúkraþjálfara á miðvikudaginn. Við töpuðum síðan fyrir Þór 4-1 á Dalvík og fyrir Haukum 5-0 í síðustu 2 leikjum en ég er búin að taka út bannið núna í þessum leikjum. Tölurnar gefa þó ekki rétt mynd af þessu! Á móti Haukum voru tveir reknir út af á 50. mín og á móti Þór var einn rekinn út af eftir 50 mín!!! Nú er bara að bretta upp ermarnar og sleppa við þessi rauðu spjöld og koma tvíefldir til leiks gegn HK þann 19. júlí í Kópavogi!! Nú styttist í Dannmerkurferð okkar vinanna en sá fyrsti mun leggja land undir fót þann 30. júlí með Iceland Express, næstu tveir daginn eftir með Iceland Express og síðustu þrír með Flugleiðum sama dag:) Það verður glatt á hjalla hjá okkur vinunum hjá Freysa í þessa 5 daga og án efa verða drukknir 1-2 bjórar.


þriðjudagur, júlí 01, 2003
Vesen!!

Það sem ég á við er það að það er eitthvað nýtt kjaftæði í bloggernum sem ég er ekki að fíla! Eitt annað sem ég er ekki að fíla og það er Hans Scheving! Lékum gegn Aftureldingu á föstudaginn á Ólafsfirði. Eftir að hafa verið 0-1 undir í hálfleik og getað ekki neitt rifum við okkur upp eftir öskrin í Nóa í háfleik og kláruðum dæmið í síðari hálfleik og unnum sætan sigur, 3-2 með marki frá Willa á lokasekúndunum en skömmu áður hafði mér verið vikið af velli með rautt spjald! Þannig er mál með vexti að ég fékk fyrra spjaldið á 2.mín eftir að ég hafði lent í 50/50 tæklingu við Albert Ara í Aftureldingu og Hansi kom askvaðandi að mér og sagði að ég hefði tæklað með báðum fótum og varð alveg öskureiður, ekki kannast ég við að hafa notað neina tvífótatæklingu! Seinna spjaldið var ekki hlægilegt heldur grátlegt! Á 92.mín vann ég boltann á þeirra vallarhelming þar sem einn Aftureldingarmaður braut á mér og missti ég við það jafnvægið! Lendi ég í því að renna mér í boltann en ekki vildi betur til að ég lenti í samstuði við varnarmann Aftureldingar. Hans fáviti Scheving notaði hagnaðarregluna en sá á einhvern óskiljanlegan hátt ástæðu fyrir að gefa mér spjald fyrir brot! Við fengum aukarspyrnu og skoruðum sigurmarkið! Ég fatt ekki eitt: Hvernig er hægt að refsa leikmanni fyrir slaka dómgæslu! Hann ákveður að nota hagnaðarregluna, hann verður að standa og falla með þeirri ákvörðun myndi ég halda! Ótrúlegt að vera að æfa eins og skepna í 10 mánuði og fá svo svona lélega dómara á þessu stutta tímabili! Annars eigum við útileik við Hauka á laugardag og verður sá leikur að vinnast! Við erum 1 stigi á eftir þeim. Ég er núna á leið í 2 leikja banna vegna 2 rauðra spjalda svo næsti leikur hjá mér er 19.júlí gegn HK í Kópavoginum. Annars er það að frétta að ég fór til Akureyrar á laugardagskvöldið ásamt liðinu út á lífið og var hörkustuð á Café Akureyri. Fórum fyrst til Sævars markmanns þar sem flestir komu saman og svo komu nokkrir leikmenn KA í heimsókn og með í för Danirnir tveir, Sören Byskov og Ronnie Hartvig. Spjallaði ég við þá á dönsku og komst að því að vinur Ronnie er að spila með Freysa úti hjá Jægersborg, gaman að því:)